

|
equal art design - 2008 |
|
um sædísi |
|
Gullsmíðaneminn og skartgripahönnuðurinn Sædís er sem stendur í námi í Bandaríkjunum og stundar nám í gullsmíði við hinn þjóðþekkta North Bennet Street School í Boston sem þekktur er fyrir einstakt og vandað handverk þar sem gæði og frágangur er í fyrirrúmi. Í gullsmíðadeildinni eru miklar kröfur gerðar til nemenda um vandvirkni, nákvæmni, aga og hraða.
Myndlist og sköpun hefur ávalt verið mjög mikilvægur þáttur í hennar lífi og leikur allt í höndunum á henni. Með stúdentspróf frá Fjölbrautarskólanum í Breiðholti og talsverða starfsreynslu á vinnumarkaðnum snéri hún við blaðinu og hóf nám við list-og hönnunardeild Iðnskólans í Hafnarfirði árið 2005-2007. Þar vaknaði áhugi hennar á að smíða og skapa fallega muni úr málmum og öðrum efnum. Hún lauk einnig stuttu námskeiði í silfursmíði í Reykjavík og hóf að smíða ýmsa fallega muni og blanda saman ólíkum efnum með silfrinu. Þar á meðal íslensku ullinni og fiskroði en hálsmenið Ullarblóm varð til á þessum tíma. Eins og margur Íslendingurinn er Sædís undir áhrifum frá íslenskri náttúru enda mikið náttúrubarn. Á ferðalögum sínum um Ísland finnur hún ýmsa Íslenska steina sem hún notar meðal annars í skartgripi eftir sig. Skartgripirnir eru allir handsmíðaðir og því hver og einn einstakur á sinn hátt.
Árið 2007 lagði hún svo land undir fót og er nú á öðru ári í gullsmíði. Sædís vinnur með góðmálma og eðalsteina. Einnig eru náttúrulegir íslenskir steinar í miklu uppáhaldi. Hún leggur mikla vinnu í verkin sín og vandar vinnubrögð og frágang.
Í sumar starfar hún á vinnustofu sinni í Listjasmiðjunni í Reykjanesbæ en leggur land undir fót í september og tekur lokaáfangann í náminu sem lýkur svo 1. febrúar 2009. Hægt er að hafa samband í gegnum tölvupóst ef óskað er eftir að eignast muni eftir hana. Einnig sérsmíðar hún eftir þörfum hvers og eins.
|

